top of page
Search

Hernámsæskan - bókarkynning

11 hours ago
1 min read

Næstkomandi fimmtudag kl. 17 verður einn af „tengdasonum Akureyrar“, sagnfræðingurinn Leifur Reynisson, með bókarkynningu í máli og myndum í Minjasafninu. Þar kynnir hann stórmerka bók sína, Hernámsæskuna, sem lýsir því á fróðlegan og skemmtilegan máta hvernig samfélagið á Íslandi breyttist á örfáaum árum með hernáminu. Unglingamenning tók að skjóta rótum og tími stælgæjans og skvísunnar var runninn upp. Sú værð sem fram að því hafði ríkt yfir mannlífinu vék fyrir daglegum stórtíðindum. Þrammandi hermenn, hraðskreið farartæki, skipamergð, dynjandi flugvélar, sírenuvæl og geltandi byssur – allt blandaðist þetta saman við lúðraþytinn, djassinn, Coca Cola og glaðværðina sem annars ríkti meðal dáta á frívakt.

Bókin verður seld á tilboðsverði, kr. 7.000 á bókakynningunni, en þar verður þó enginn posi til staðar, svo að reiðufé væri kjörið, en einnig verður hægt að leggja inn á bankareikning.

Það er Bókaútgáfan Hólar sem gefur út Hernámsæskuna og vonandi mæta sem flestir söguáhugamenn á kynninguna.

 
 
 

Comments


bottom of page